Hugrænn styrkur - Náðu lengra

Við bjóðum upp á fyrirlestra, fræðslumyndbönd, námskeið, einstaklingsviðtöl og hlaðvarp.

Hugrænn styrkur er sálfræðiþjónusta sem leggur áherslu á íþróttafólk, íþróttalið og aðra frammistöðutengda sálfræði. Ávallt er lögð áhersla á fagmennsku og stuðst við nýjustu rannsóknir í fræðunum. Markmið okkar er að veita auðvelt aðgengi að faglegri sálfræðiþjónustu

Um 35% af afreksíþróttafólki ná klínískum viðmiðum fyrir andlega erfiðleika.

Samkvæmt Athletes for Hopes og Psychology Today (2022)

Okkar þjónusta

Námskeið

Við bjóðum upp á námskeið fyrir íþróttafólk sem er með það að markmiði að fólk fái aukinn skilning og verkfæri til að takast á við andlegu hliðina. Fólk getur nýtt sér námskeiðin til að líða betur innan sem utan vallar. Sjá nánar um þau námskeið sem eru í boði hér.

Fyrirlestrar

Við bjóðum upp á ýmsa fyrirlestra eins og sjálfstraust í íþróttum og starfi, samskipti, svefn, kvíða og fleira. Einnig tökum við á móti fyrirspurnum ef leitast er eftir fræðslu um annað efni. Til að bóka fyrirlestur eða senda inn fyrirspurn er hægt að hafa samband hér.

Fræðsla

Við bjóðum upp á fræðslumyndbönd sem fólk getur nýtt sér til að auka við þekkingu og öðlast verkfæri til að takast á við andlegu hliðina innan sem utan vallar. Til að kynna sér úrvalið og fá aðgengi á fræðslumyndböndunum er hægt að ýta hér.

Sálfræðiviðtöl

Við bjóðum upp á einstaklingsmiðaða nálgun í samtalsviðtölum. Viðtölin fara fram á þeim stofum sem sálfræðingarnir vinna á. Til að bóka sálfræðiviðtal við sálfræðing hafðu samband hér.

Námskeið í boði

ACT að bættri frammistöðu og líðan

Námskeiðið hentar vel íþróttafólki, foreldrum og öðrum aðilum innan íþrótta. Á námskeiðinu er lögð áhersla á að íþróttafólk læri að spila eftir bestu getu þrátt fyrir erfiðleika, mótlæti og pressu sem …

Náðu lengra

Í námskeiðinu er farið yfir það hvað hjálpar fólki að ná betri árangri og betri líðan í sinni íþrótt. Námskeiðið nýtist íþróttafólki og öðrum sem eru aðstandendur eða í íþróttaumhverfinu. …

Heyrðu í okkur

Til að bóka fyrirlestra, sálfræðiviðtöl eða ef þú ert með fyrirspurn til okkar