Hjálmtýr Alfreðsson​

Sálfræðingur​

Hjálmtýr útskrifaðist með BSc gráðu í sálfræði frá Háskólanum í Reykjavík árið 2019. Vorið 2021 útskrifaðist hann með MSc gráðu í klínískri sálfræði einnig frá Háskólanum í Reykjavík og fékk starfsleyfi í kjölfarið.

Hjálmtýr öðlaðist klíníska reynslu frá starfsþjálfun sinni hjá Reykjalundi og hjá Sól sálfræði- og læknaþjónustu. Þar fékk hann þjálfun í meðferðarvinnu með fólki á bæði verkja- og gigtarsviði og með ungmennum undir handleiðslu reyndra sálfræðinga. Þar vann hann meðal annars við meðferð á þunglyndi, kvíða, lágu sjálfsmati, langvarandi verkjum og hlutverkamissi. Þá notaðist hann aðallega við HAM við greiningu og meðferð. Eftir nám hóf Hjálmtýr störf hjá Reykjalundi sem sálfræðingur á bæði verkja- og gigtarsviði. Einnig hefur hann sinnt greiningum og meðferðarvinnu á sálfræðistofum samhliða og séð um fjarhópnámskeiðin ACT að bættri líðan og ACT við þrálátum verkjum hjá VIRK.

Hjálmtýr hefur áhuga á íþróttum og að vinna með íþróttafólki. Hann hefur verið í handknattleik á afreksstigi í yfir áratug og hefur góða þekkingu og reynslu á íþróttaumhverfinu. Áhugi Hjálmtýs innan sálfræðinnar er að vinna með kvíða, lágt sjálfsmat, langvarandi verki og íþróttasálfræði.

Hjálmtýr starfar sem sálfræðingur hjá Domus mentis geðheilsustöð og tekur sín viðtöl þar.

Viktor Örn Margeirsson​

Sálfræðingur​

Viktor starfar á Kvíðameðferðarstöðinni og Heil – heilsumiðstöð þar sem hann vinnur við meðferð á þunglyndi, kvíða, lágu sjálfsmati, kulnun, áföllum og íþróttasálfræði. Þá notast hann aðallega við HAM og ACT við greiningu og meðferð. Eftir nám hóf Viktor störf hjá Kvíðameðferðar-stöðinni sem sálfræðingur. Þar sinnti hann greiningu og meðferð einstaklinga sem og stýrði hópmeðferðum.

Einnig hefur hann sinnt greiningum og meðferðarvinnu á Heil- heilsusmiðstöð þar sem hann vinnur í þverfaglegu teymi sálfræðinga, sjúkraþjálfara og næringarfræðinga.

Viktor hefur áhuga á íþróttum og að vinna með íþróttafólki. Hann hefur verið 
í knattspyrnu á afreksstigi í yfir áratug og hefur góða þekkingu og reynslu á íþróttaumhverfinu. Lengst af hefur Viktor spilað með Breiðabliki en einnig öðrum liðum. Viktor á einn landsleik fyrir Íslenska landsliðið í knattspyrnu.

Viktor starfar sem sálfræðingur hjá Heil – heilsumiðstöð og Kvíðameðferðarstöðinni og tekur sín viðtöl þar.

Hafðu samband ef við getum hjálpað þér.​

Hafðu samband ef við getum hjálpað þér.