„Hjá Hugrænum styrk leggjum við ríka áherslu á fagmennsku, gagnkvæmt traust og virðingu í öllum okkar störfum. Teymið samanstendur af sálfræðingum og íþróttasálfræðiráðgjafa með víðtæka sérþekkingu og fjölbreytta reynslu. Við bjóðum upp á alhliða þjónustu sem tekur jafnt til meðferðar á klínískum vanda sem og íþróttasálfræði, fyrir íþróttafólk og fagfólk, þar sem markmiðið er ávallt að hámarka frammistöðu og efla andlega vellíðan.“
Klínískur sálfræðingur
Viktor Örn útskrifaðist með MSc gráðu í klínískri sálfræði frá Háskólanum í Reykjavík vorið 2022 og fékk starfsleyfi í kjölfarið. Einnig bætti hann við sig örnámi í íþróttasálfræði frá Háskólanum í Reykjavík árið 2025. Viktor Örn er einn stofnenda Sálfræðiklíníkarinnar og Hugræn styrks sálfræðiþjónustu. Einnig er Viktor knattspyrnumaður og spilar með Breiðabliki í efstu deild á Íslandi sem hann hefur gert yfir áratug. Hann hefur unnið tvo íslandsmeistaratitla og á einn landsleik.
Viktor sinnir greiningu og meðferð á sálrænum vanda hjá fullorðnum og ungmennum. Áhugi Viktors innan sálfræðinnar er að vinna með kvíða, áráttu og þráhyggjuröskun(OCD), lágt sjálfsmat, og frammistöði-, og íþróttasálfræði. Viktor nýtir gagnreyndar aðferðir eins og ACT (Acceptance and commitment therapy) og HAM (Hugræn atferlismeðferð). Hann hefur stýrt námskeiðunum fyrir OCD, félagskvíða, lágu sjálfsmati og frammistöðu tengd námskeið. Viktor vinnur með flestan kvíðavanda, þunglyndi, sjálfsmatsvanda, áföll, áráttu og þráhyggju (OCD), svefnvanda og frammistöðusálfræði fyrir íþróttafólk og vinnustaði. Hann hefur einnig tekið að sér fyrirlestra fyrir íþróttalið og vinnustaði.
Klínískur sálfræðingur
Hjálmtýr útskrifaðist með BSc gráðu í sálfræði frá Háskólanum í Reykjavík árið 2019. Vorið 2021 útskrifaðist hann með MSc gráðu í klínískri sálfræði einnig frá Háskólanum í Reykjavík og fékk starfsleyfi í kjölfarið. Hjálmtýr er einn stofnenda Sálfræðiklíníkarinnar og Hugræn styrks sálfræðiþjónustu
Hjálmtýr öðlaðist klíníska reynslu frá starfsþjálfun sinni hjá Reykjalundi og hjá Sól sálfræði- og læknaþjónustu. Þar fékk hann þjálfun í meðferðarvinnu með fólki á bæði verkja- og gigtarsviði og með ungmennum undir handleiðslu reyndra sálfræðinga. Þar vann hann meðal annars við meðferð á þunglyndi, kvíða, lágu sjálfsmati, langvarandi verkjum og hlutverkamissi. Þá notaðist hann aðallega við HAM við greiningu og meðferð. Eftir nám hóf Hjálmtýr störf hjá Reykjalundi sem sálfræðingur á bæði verkja- og gigtarsviði. Einnig hefur hann sinnt greiningum og meðferðarvinnu á sálfræðistofum samhliða og séð um fjarhópnámskeiðin ACT að bættri líðan og ACT við þrálátum verkjum hjá VIRK.
Hjálmtýr hefur áhuga á íþróttum og að vinna með íþróttafólki. Hann var í handknattleik á afreksstigi í yfir áratug og hefur góða þekkingu og reynslu á íþróttaumhverfinu. Áhugi Hjálmtýs innan sálfræðinnar er að vinna með kvíða, lágt sjálfsmat, langvarandi verki og íþróttasálfræði.
Íþróttasálfræðiráðgjafi
Hreggviður Hermannsson Íþróttasálfræðiráðgjafi Hreggviður starfar við íþróttasálfræðiráðgjöf með áherslu á frammistöðu, sjálfstraust og andlegan styrk. Hann vinnur með íþróttafólki og einstaklingum sem vilja styrkja sig í krefjandi aðstæðum og ná stöðugri frammistöðu undir álagi. Í starfi sínu byggir Hreggviður á nálgunum sem leggja áherslu á að auka sálrænan sveigjanleika, skýra sjálfsmynd og meðvitaða tengingu við eigin gildi. Unnið er með hugsanir og tilfinningar á uppbyggilegan hátt, með það markmið að einstaklingurinn geti mætt áskorunum með skýrleika og festu.
Hreggviður hefur sjálfur reynslu úr keppnisíþróttum og þekkir vel kröfur og væntingar sem fylgja árangursumhverfi. Markmið hans er að hjálpa einstaklingum að byggja upp hugrænan styrk sem heldur, bæði innan og utan vallar.