Á fræðslunni verður fjallað um hvernig tilfinningar birtast og geta haft áhrif á frammistöðu og líðan. Einnig er komið inn á kvíða í íþróttum, hræðslu við mistök, andlegan styrk og óhjálplega hegðun og viðhorf. Farið verður yfir það hvernig er hægt að mæta iðkendum á hjálplegan og uppbyggilegan máta. Notast er við gagnreyndar aðferðir innan sálfræðinnar.