ACT að bættri frammistöðu og líðan

55.000kr.

55.000kr.

Námskeiðið ACT að bættri frammistöðu og líðan hefst í október. Bæði er hægt að sækja um á stað- og fjarnámskeið. Námskeiðið er sex tímar þar sem hver tími er 2 klst. Námskeiðið er fyrir þau sem upplifa að hugsanir og tilfinningar hindra þau í frammistöðu sem og í daglegu lífi. Áhersla er lögð á að afreksfólk læri að lifa betur með hugsunum og tilfinningum svo það hindri þau síður innan sem utan vallar. Þá eru kenndar ýmsar aðferðir til að takast á við erfiðar hugsanir og tilfinningar. ACT stendur fyrir Acceptance and commitment therapy og er gagnreynt meðferðarform þar sem lögð er áhersla á að gangast við stöðu mála (acceptance) og tileinka sér núvitund í bland við breytingar á hegðun.

Ef einhverjar spurningar vakna þá má endilega hafa samband við okkur.