Námskeiðið Náðu lengra hjá Hugrænum styrk hefst í September. Um er að ræða staðnámskeið en einnig verður hægt að horfa á í streymi. Námskeiðið er þrír tímar þar sem hver tími er 1-2 klst. Námskeiðið er fyrir þau sem vilja skilja hvað þarf til að skara fram úr í sínu fagi eða íþrótt. Þá eru kenndar ýmsar aðferðir til að takast á við kvíða og aðrar erfiðar tilfinningar. Einnig er lögð áhersla á aðferðir til að bæta frammistöðu og vellíðan innan sem utan vallar. Ásamt reynslusögum farsælla einstaklinga, byggir námskeiðið á HAM (Hugræn atferlismeðferð), einni gagnreyndustu sálfræðimeðferð sem völ er á.
Á námskeiðinu er komið inn á kvíða í íþróttum, að takast á við mistök, andlegan styrk, markmiðasetning, svefn o.fl.